Fyrsti í aðventu

hæ gott fólk núna er bara stax kominn fyrsti í aðventu. 

í tilefi af því fór öll fjölskyldan og ég í messu og á eftir var boðið upp á léttar veitingar.

Þarna var einnig lítill jólamarkaður þar sem seldar voru bækur,smákökur og allskonar jólaföndur sem krakkarnir hafa unni í barnastarfi þar.

 Fjölskyldan mín er Lútherstrúar og söfnuðurinn ekki mjög stór þar sem flestir eru í Katþólskukirkjunni. Þannig að þetta er voða lítið og þæinlegt bara nánast eins og heimaSmile

Síðan um kvöldið komu vinir í heimskókn til fjölskyldunnar og við gæddum okku á smákökum saman og sungum jólalög undir píanó og þverflautuleik. 

Eftir sönginn var svo farið út kveyktur lítll varðeldur, drukkið jólaglögg og borðað gúllas.

Þannig að þetta er mjög góð byrjun á aðventu hér hjá mér, ég vona bara að jólaundirbúningurinn gangi vel hjá ykkur öllum og umfram allt njótið aðventunar.      


Leikfangasýning

Um helgina fór ég á risa leikfanga sýningu/ kynningu. Þar gat maður fengið að prufa hvaða spil sem maður vildi og öll stóru leikfangaframleiðendurnir með voða flotta sölu bása. Þetta er alltaf einu sinni á ári rétt fyrir jólin svo maður geti komist að því hvað höfðar til krakkana og auðvitað fullorðinna líka því þarna voru allskonar spil í gangi.

Svo að ég mamman og krakkarnir og vinir fjölskyldunnar vorum þar allan daginn að prufa ný og ný spil. Þannig að úr því varð bara hinn ágætasti spiladagur, og krakkarnir búnir að finna út hvað á að biðja jólasveininn um í jólagjöf Smile

 

Ég segi ykkur frá jóla haldi hérna í Austurríki á aðventunni einhvern tímann

Svo þangað til seinna


Jólabaksturinn byrjaður

jæja á föstudaginn fórum við ( ég mamman og tvö yngri) heim til Helgu og bökuðum okkur alíslenskar piparkökur. Svo gerði mamman eina sort af einhverskonar appelsínusmákökum. Í stuttu máli sagt heppnaðist baksturinn bara alveg ljómandi vel og smakkaðist líka enn betur Tounge 

svo bauð Helga mér að koma einhverntíman og baka uppáhalds sortina mína fyrir jólin. Aldrei að vita nema að maður taka hana á orðinu, líka fyrst að mamma var svona góð að senda mér uppskriftina Smile


Jólamarkaðurinn

í kvöld gerði ég mér ferð í bæinn til að fá mér göngu túr og skoða öll jólaljósin í miðbænum mjög flott og á líklega efir að vera meira af þeim.  

 svo rambaði ég á píanóleikara sem spilaði klassíska tónlist á miðju torginu í miðbænum.

Ég fór líka á jólamarkaðinn, mæli með fyrir alla að skoða hann alveg rosalega jólalegt og flott. Þannig að nú er ég sko alveg komin í jólaskap jafnvel þó það sé bara nóvember og enginn snjór hjá mér eða neitt. Blush 

 


Steyktur fiskur í raspi

Hvað haldiði nema að hún Helga hafi ekki bara boðið mér í kvöldmat. Á boðstólnum var steyktur fiskur í raspi ný fenginn frá Fáskrúðsfirði og svo ís í eftirrétt, það er nú valla hægt að hafa þetta betra Smile. ótrúegt að ég er ekki búin að bragða fisk í tvo mánuði. það er með þetta eins og margt annað : Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. ( í tvo mánuði Errm úff veit ekki hvernig þetta verður eftir hvað 7 mánuði). Kems sammt líklega yfir þetta   

Bohra

Hæ hæ ég fékk frí í dag þannig að ég tók því bara rólega fór svo út að borða. Panntaði mér pasta og það var með því besta pasta sem ég hef smakkað Tounge. Sérstaklega því ég var ekki alveg viss hvað ég var að pannta ( frekar erfitt að skilja pasta matseðla hér , en já það heppnaðist sem sagt vel ), á eftir að fara þangað oftar skal ég segja ykkur.

Síðan fór ég í bíó á myndina Bohra frá Kasekstan en ég verð nú því miður að vera leiðinleg og segja að hún stóðst alls ekki væntinar hjá mérFrown. Ágæt á köflum en bara alls ekki minn húmor.


gæsabringur og ljósalugtir

hæ í dag er hátíðisdagur í Austurríki held að þetta sé svipað og öskudagur heima.Fólk fagnar byrjun á eihverju sérstöku tímabili þekkin ekki alveg nægilega vel til til að segja meira.En veit að þetta er ekki aðventa því hún byrjar á sama tíma og heima auðvitað.  

En á þessum degi fara krakkarnir með ljósalugtir og ganga úti í myrikrinu og syngja, svo er borðuð gæs þegar fólkið er komið heim(umm lecker )Tounge

Hérna er eitt af lögunum seim þau sungu:

Laterne Laterne.

 Laterne, Laterne, Sonne, Mond und

Sterne. Brenne auf mein Licht, aber

nur meine liebe Laterne nicht !

svo eru fleiri erindi.  

en þetta þýðir í runinni að sólin, máninn og stjörnurnar meiga hætta að skýna en alls ekki elsku lugtin mín. 

   


101 Reykjavík

Var að passa hana Krístínu litlu í gærkvöldu og þegar hún var sofnuð horfið ég á 101 Reykjavík.

Það eru líklega allir búnir að sjá hana, en alla vega þá mæli ég alveg með henni, frekar rugluð en góð sammt sem áður. Wink


Tannlæknir

Það býr Íslensku tannlæknir hér í vín mér finnst það mjög sniðugt. Það gat líka ekki verið heppilegra fyrir mig því ég þurti að fara tannlæknis( ekki tannpína eða neitt þannig sko). Svo ég gat bara hrinkt og pannað mér tíma á mínu móður mál og ekkert vesen og það sem meira var gaf hann mér tíma bara strax daginn eftir að ég hringdi Smile.

og smá upplýsingar fyrir pabba. Hann á ættir að rekja í Skraðshlíð.  

 


Skólinn og að læra þýsku

Mér gengur bara mjög vel í þýskunáminu mínu og var meðal þeirra hæstu í prófi sem vit tókum í seinsustu viku ótrúlegt en satt ég Heiða Björg Ingólfsdóttir ein af þeim hæstu í þýsku. W00t

Mér gekk hræðilega í þýsku þegar ég var heima og ég held að ég sé búin að finna ástæðuna.

kennarinn heima var ekki nógu harður. Maður er bara hálf hræddur við kennarann hér ef maður segir eitthvað vitlaust Devil, og já það virðist að minnasta kosti virka á mig. Hún heldur manni við efnið í tímum svo við förum nú mjög fínt í þetta Smile 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Heiða Bloggar

Höfundur

Heiða Björg Ingólfsdóttir
Heiða Björg Ingólfsdóttir

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband